Monday, November 06, 2006
Íslenskukennsla
Nú er ég búin að kenna útlendingum íslensku í einn mánuð. Ég kenni tveimur hópum, konum sem vinna við umönnun á Skjóli og körlum sem vinna á verkfræðistofu. Kennslan fer fram á vinnustaðnum á vinnutíma og er greidd af vinnuveitandanum. Á morgun byrjar nýr hópur á Landspítalanum. Þetta er gott fyrirkomulag og ég er yfir mig þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu verkefni.
Comments:
<< Home
Ég er glöð að þú skulir vera að kenna íslensku. Það gera fáir betur en þú og þú er svo flink í móðurmálinu okkar. Ég hitti í dag víetnamska konu, sem kom hingað sem flóttamaður fyrir 17 árum. Hún sagði að það hefði verið ofsalega erfitt að koma alveg mállaus í nýtt land.
Post a Comment
<< Home
