Wednesday, March 29, 2006
Ég fíla New York!
Ég tek undir með konunni sem sagðist annaðhvort vilja vera uppi í óbyggðum á Íslandi eða í bullandi stórborg í útlöndum. Nú er ég nýkomin frá New York og verð að segja að ég fíla þá borg afskaplega vel. Þriggja daga dvöl í stórborginni með móður minni og dóttur var alveg ógleymanleg og óendanlega dýrmæt. Og ekki var verra að hafa tengdasoninn með þegar það hentaði honum og okkur.
Á leiðinni las ég Draumalandið en hér er umsögn um þá góðu bók http://www.tmm.is/
Næst er það Kúba og svo íslensku fjöllin.
Á leiðinni las ég Draumalandið en hér er umsögn um þá góðu bók http://www.tmm.is/
Næst er það Kúba og svo íslensku fjöllin.
Monday, March 20, 2006
Um helgina
gerði ég margt skemmtilegt. Ég sá Pétur Gaut, þá stórfínu sýningu. Ég fór í gönguferð við Þingvallavatn með gömlum skólafélögum. Á meðan þokan lá yfir Reykjavík skein sól yfir Þingvallavatn og stórir urriðar svömluðu og stukku alveg við vatnsbakkann. Ég fór á salsanámskeið og lék hlutverk í Stelpunum. Endaði helgina á að horfa á Krónikkuna, þann góða þátt.
Thursday, March 16, 2006
Á meðan ég horfði á
tíðindi dagsins í fréttum og Kastljósi, altso sýknun í Baugsmáli og brottför hersins, þá dundaði ég mér við hversdagslega hluti. Ég tók sem sé Flylady-törn (sjá 8. febrúar) í sokkabuxnaskúffunni minni. Það er svo oft þannig að ég finn ekki réttu sokkabuxurnar í yfirfullri skúffunni þar sem ægir saman heilum og götóttum sokkabuxum í alls konar litum. Ég geymi nefnilega götóttar sokkabuxur ef ég skyldi kannski einhvern tíma nota þær undir buxur þegar kalt er í veðri. En svo geri ég það aldrei. Alla vega þá notaði ég sjónvarpstímann í að sortera. Henti öllum götóttum sem voru hvorki meira né minna en 15 talsins. Og hvað átti ég þá margar eftir? 30 pör!!!!!
Wednesday, March 15, 2006
Út um gluggann
sé ég fimm byggingakrana. Líka fullt af ljósastaurum og fánastöngum. Mér finnst þetta ekkert sérlega fallegt. Esjan er í þoku og himinninn grár. Smágárur á sjónum. Endalaus bílaumferð og bílastæðið troðfullt. Samt er ég ekkert sérlega fúl.
Svo margt skemmtilegt að gerast; salsanámskeið og kóræfingar til að búa sig undir Kúbuferðina; sund á hverjum morgni; skemmtilegar vinkonur; gönguferð með gömlum skólafélögum um helgina - og svo New York eftir viku.
Svo margt skemmtilegt að gerast; salsanámskeið og kóræfingar til að búa sig undir Kúbuferðina; sund á hverjum morgni; skemmtilegar vinkonur; gönguferð með gömlum skólafélögum um helgina - og svo New York eftir viku.
Friday, March 10, 2006
Er að ná betri tökum
á skriðsundinu. Fyrst beygði ég alltaf hálsinn til hliðar til að anda og allt stefndi í hálsríg. Nú rugga ég mér á hliðarnar til skiptis og anda þegar ég kem upp hægra megin. Ég finn hvað þetta er gott fyrir bakið og hvað skriðsund liðkar mann meira en bringusund. Hins vegar verð ég svo móð í skriðsundinu að ég þarf að taka nokkrar ferðir á bringusundi með. En vonandi eykst mér þrek og þol.
Sunday, March 05, 2006
Aftur
gott veður í dag. Fór í sund með nýju blöðkurnar mínar. Sumir kalla blöðkur froskalappir en aðrir sundfit. Alla vega þá hefur mig lengi langað til að læra skriðsund en aldrei komið mér á námskeið. Nefndi þetta í heita pottinum um daginn og þá var mér ráðlagt að fá mér blöðkur sem fást í sérstakri sundbúð í Kópavogi. Á föstudaginn mætti ég svo með blöðkurnar og fékk ágætis tilsögn frá nokkrum þaulvönum sundköppum. Æfði mig svo í gær og í dag og komst að því að þetta er ekki auðvelt. En miklu betra fyrir hnén en bringusund og meiri áreynsla. Nýr kafli á mínum sundferli.
Svo gekk ég í einn og hálfan tíma í logni og sólskini með vinkonu minni meðfram sjónum og það var háfjara. Ég veit að þetta er klisja en ég ætla samt að segja að maður fyllist af orku þegar maður gengur úti í svona fallegu umhverfi. Endurnærist og verður bjartsýnn.
Það held ég nú.
Svo gekk ég í einn og hálfan tíma í logni og sólskini með vinkonu minni meðfram sjónum og það var háfjara. Ég veit að þetta er klisja en ég ætla samt að segja að maður fyllist af orku þegar maður gengur úti í svona fallegu umhverfi. Endurnærist og verður bjartsýnn.
Það held ég nú.
Saturday, March 04, 2006
Er að reyna
að komast í bloggstuð á ný. Það er erfitt eftir svona langt hlé. Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa. Get t.d. byrjað á veðrinu sem er svo fallegt í dag. Ég fór með tveimur litlum strákum niður í fjöru, dóttursyni og bróðursyni. Þeir vildu sulla í pollum í fjörunni og klöngrast á hálu fjörugrjótinu en ég stóð hjá æpandi: "Passið ykkur, passið ykkur!" Ekki alveg skemmtileg kelling það. En það var svo gaman að sjá þá leika sér og þegar þeir komu heim í garð klifruðu þeir í stóra trénu og hlupu um í hólunum. Og aftur æpti ég: "Passið ykkur, passið ykkur!" Er ekki í lagi með mig? Maður smitaðist af fjörinu í þeim og þeir voru með eplakinnar þegar þeir komu inn. Ég reyndar líka.