Monday, July 31, 2006
Barnabarn
Í allan dag var ég að passa dótturson minn sem er fimm ára gamall. Við fórum ásamt hinni dóttur minni, altso móðursystur hans, í sund og síðan héldum við á kaffihús. Drengurinn vildi endilega fara á kaffihúsið í bókabúðinni svo að við fórum á Súfistann. Hann náði sér í bók, pantaði appelsín (af því að sprite var ekki til) en við mæðgur fengum okkur kaffi og lásum slúðurblöð. Síðan fórum við í Melabúðina, keyptum í matinn og ég eldaði fiskrétt handa dætrum mínum tveimur og drengnum. Eftir matinn bökuðum við langmæðginin (þ.e. ég og drengurinn) súkkulaðiköku að hætti Betty Crocker og móðursystirin bjó til smjörkrem. Við gúffuðum þetta í okkur af mikilli græðgi.
Þessi dagur var hreint yndislegur; drengurinn er svo skemmtilegur og tekur svo miklum framförum. Hann hefur auðugt ímyndunarafl og einstakan húmor. Og við mæðgur elskum hann báðar út af lífinu og ég fann fyrir sérstakri hamingju yfir því að gleðjast saman með honum. Og það er ekki ónýtt.

Thursday, July 13, 2006
Sumarfrí
Gönguferð um Vesturöræfi með Augnabliki. Fossar munu þagna; vel gróið land í 600 m hæð fer á kaf; jökulleir mun fjúka yfir hæðir - EF Kárahnjúkavirkjun verður að veruleika.