Friday, October 27, 2006
Enn rignir
Bölvaði rigningunni á leiðinni í vinnuna þangað til ég heyrði í útvarpinu fréttir um skógarelda í Kaliforníu og mestu þurrka í heila öld í Ástralíu.
Thursday, October 26, 2006
Rigning
Ég er rignunni fegin eftir um 10 daga samfellt bjartviðri. Mér fannst allt orðið svo rykugt og óhreint. Nú hreinsast allt. Ég vona samt að það rigni ekki of lengi. Í svona veðri verð ég að viðurkenna að ég er þakklát fyrir bílinn minn.
Monday, October 23, 2006
Helgin afstaðin
Mikil fjölskylduhelgi er nú afstaðin. Á laugardaginn bauð ég fjölskyldunni minni í kjötsúpu og grjónagraut. Bjó líka til rifsgraut og eplaköku. Setti osta á fat. 12 gestir. Mikið er gott að eiga fjölskyldu sem finnst gaman að koma saman. Tek þá áhættu að þykja væmin þegar ég segist vera þakklát fyrir fjölskyldu mína. En þannig blogga ég þessa dagana. Er jákvæð og þakklát.
Og á sunnudaginn fór ég í kaffi til mömmu þar sem ég hitti frændfólk komið á níræðisaldur en eitilhresst og nútímalegt í hugsun. Það er gott að hafa slíkar fyrirmyndir nærri.
Og á sunnudaginn fór ég í kaffi til mömmu þar sem ég hitti frændfólk komið á níræðisaldur en eitilhresst og nútímalegt í hugsun. Það er gott að hafa slíkar fyrirmyndir nærri.
Wednesday, October 18, 2006
Fyrsta frostið
Í morgun var frost í fyrsta sinn í haust. Blæjalogn og bjart; haustveður upp á sitt besta. Og í gærkveldi stjörnubjart og norðurljós.
Ég er þakklát fyrir hlýju kápuna mína, heita vatnið í sundlauginni og Esjuna í morgunsólinni.
Ég er þakklát fyrir hlýju kápuna mína, heita vatnið í sundlauginni og Esjuna í morgunsólinni.
Tuesday, October 17, 2006
Í gær
kenndi ég íslensku 15 erlendum konum sem hingað eru komnar langa leið til að hlúa að gömlu fólki á hjúkrunarheimili. Flestar eru frá Litháen en nokkrar frá Póllandi og Filippseyjum. Ein frá Tékklandi og ein frá Lettlandi. Þær voru svo áhugasamar, jákvæðar og skemmtilegar og ég hlakka svo til að kynnast þeim betur. Það er tilhlökkunarefni dagsins.
Monday, October 16, 2006
Vetur
Í morgun fann ég fyrir vetrinum og stóð mig að því að kvíða honum. Kvíða myrkrinu, rokinu og kuldanum næstu 6-7 mánuðina. Það gengur náttúrlega ekki að leggjast í eymd og volæði hálft árið svo að nú ætla ég að gera áætlun. Setja mig í jákvæðar stellingar og mæta vetrinum með tilhlökkun. Finna að minnsta kosti eina jákvæða hugsun og tilhlökkunarefni á dag.
Ég hlakka til að koma heim í kvöld, kveikja á kertum og lesa bók fyrir leshring á miðvikudaginn.
Ég hlakka til að koma heim í kvöld, kveikja á kertum og lesa bók fyrir leshring á miðvikudaginn.
Saturday, October 14, 2006
Dæmigerð haustlægð
er yfir Reykjavík, hvínandi rok og rigning. Laufin fokin af mörgum trjám - en þó ekki öllum. Í dag ætla ég að kúra inni, vinna smá, taka til, kannski drífa mig í regngallann og fara í hressingargöngutúr seinni partinn. Elda góðan mat og fara í bíó.
Thursday, October 12, 2006
Ég er í vandræðum
með að koma allri líkamsræktinni inn í prógramið hjá mér. Undanfarið ár hef ég synt með vinkonum mínum í Vesturbæjarlauginni kl. 7:30 á næstum hverjum morgni. Og nú er ég aftur byrjuð í leikfimi í Kramhúsinu á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15. Síðan vil ég endilega hjóla í vinnuna. En það er dáldið mikið að hjóla með sunddót (froskalappirnar taka mikið pláss) og leikfimidót og handtösku með því allra nauðsynlegasta þó að ég hafi bæði körfu og bögglabera. Það er líka dáldið mikið að synda 500 m að morgni og sprikla síðan í Kramhúsinu síðdegis, plús hjólaferðirnar. Ég er bara uppgefin þegar ég kem heim að kveldi.
Mér finnst ég samt óskaplega heppin að geta gert þetta allt saman . . .
Mér finnst ég samt óskaplega heppin að geta gert þetta allt saman . . .