Sunday, November 26, 2006
Rifsið
stífnaði ekki. Kannski hef ég soðið það of lengi. Kannski var ekki nóg grænt með. Hvað um það, gumsið er gómsætt. Reyni að finna leið til að nota það. Það er örugglega gott út á ís. Eða á tertubotn með rjóma, kannski marens. Mér dettur þetta bara í hug um leið og ég skrifa. Segið svo að það borgi sig ekki að blogga. Það er þá þakkarefni dagsins.
(Ég á meira rifs í frystinum og vanda mig við þá sultugerð svo að ég eigi til jólanna.)
(Ég á meira rifs í frystinum og vanda mig við þá sultugerð svo að ég eigi til jólanna.)
Friday, November 24, 2006
Helgin framundan
og ekkert sérstakt á dagskrá - nema bíóferð í kvöld og leikhús á morgun. Slökun og tiltekt. Kannski sulta ég rifs og baka Sörur. Alla vega ætla ég að lesa mikið - vonandi gefst tóm til þess.
Þakkarefni dagsins er þessi fagri morgunn. Bleik birta á Esju og Skarðsheiði klukkan tíu þegar sólin var að koma upp.
Þakkarefni dagsins er þessi fagri morgunn. Bleik birta á Esju og Skarðsheiði klukkan tíu þegar sólin var að koma upp.
Wednesday, November 22, 2006
Í gærkveldi
kláraði ég að prjóna lopapeysu á dóttur mína. Ég var ekki viss um að hún hefði heppnast nógu vel en svo þvoði ég hana og lagði hana til þerris. Fór síðan að sofa og þegar ég vaknaði í morgun og leit á flíkina sá ég að mér hafði bara tekist harla vel. Á morgun flýgur peysan til New York! Vonandi gerir hún lukku þar.
Tuesday, November 21, 2006
Synti í 7 stiga
frosti í morgun. Hef ekkert farið í sund síðan kólnaði og hélt satt að segja að enginn legði í sund í slíkum gaddi. En þegar ég mætti var allt eins og venjulega; fastagestirnir á sínum stað og höfðu m.a.s. gert sínar Möllersæfingar á bakkanum, eins og venjulega.
Þakkarefni dagsins er því að sjálfsögðu heita vatnið - hvílík nautn að synda í volgu vatni og sitja svo lengi í heitum potti undir stjörnubjörtum himni að spjalla við skemmtilegt fólk.
Þakkarefni dagsins er því að sjálfsögðu heita vatnið - hvílík nautn að synda í volgu vatni og sitja svo lengi í heitum potti undir stjörnubjörtum himni að spjalla við skemmtilegt fólk.
Monday, November 20, 2006
Yndisleg helgi
að baki.
Unaðsdagur með dóttursyni. Piparkökubakstur, Ronja ræningjadóttir og lestrarkennsla!
Skemmtun með kórsystrum.
Tók fagnandi á móti vetri öslandi gegnum snjóskafla á leið til kirkju.
Las og prjónaði.
Svaf vel.

Monday, November 06, 2006
Íslenskukennsla
Nú er ég búin að kenna útlendingum íslensku í einn mánuð. Ég kenni tveimur hópum, konum sem vinna við umönnun á Skjóli og körlum sem vinna á verkfræðistofu. Kennslan fer fram á vinnustaðnum á vinnutíma og er greidd af vinnuveitandanum. Á morgun byrjar nýr hópur á Landspítalanum. Þetta er gott fyrirkomulag og ég er yfir mig þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu verkefni.