Monday, June 19, 2006

 

Loksins

er ég búin að ákveða hvað ég ætla að vera þegar ég verð stór. Ég ætla að verða líffræðingur!

Friday, June 16, 2006

 

Er enn að hugsa

um fríið framundan. En líka um sumarið sem aldrei kemur, hvort hann ætli aldrei að hætta að rigna. Og hvort sé betra að vera í slagveðri og 10 stiga hita og hreinu lofti eða 30 stigum og sól og mengun, eins og mér skilst að sé víða í Evrópu um þessar mundir.
En ósköp verður maður þungur þegar rignir svona dag eftir dag eftir dag. Þrátt fyrir Sundlaug Vesturbæjar.

Wednesday, June 14, 2006

 

Sit fram á kvöld

og þýði bókina sem kennir manni að kála draslinu. Þó að mér finnist gaman að þýða hugsa ég um hvað ég geri þegar ég verð búin. Þá ætla ég nefnilega í frí austur á land. En það er ekki fyrr en eftir rúma viku. Núna ætla að njóta síðustu vinnustundarinnar í kvöld en stelst til að hlakka til bjórsins sem ég fæ mér þegar ég kem heim.

Thursday, June 08, 2006

 

Að njóta

Þegar ég sat í heita pottinum í sundlauginni í morgun var ég ekkert mikið að hugsa um hvað ég ætlaði að gera næst . . .

Monday, June 05, 2006

 

Játning

Í morgun vaknaði ég snemma. Naut þess að hanga lengi yfir Mogganum frá í gær og drekka grænt te með mjólk og hunangi frá íslenskum bændum í Kanada. Uppgötvaði að ég naut þess og var ekki að hugsa um hvað ég ætlaði að gera næst.

Sunday, June 04, 2006

 

Að njóta augnabliksins

Mig langar svo til að geta notið augnabliksins. En það er sama hvað ég er að gera - ég fer alltaf að hugsa um hvað ég ætla að gera næst. Meira segja þegar ég er að gera eitthvað skemmtilegt og gott. Meira segja þegar ég ligg í slökun í yoga þá fer ég að hugsa um hvað ég ætla að hafa í matinn. Og í stað þess að njóta matarins þá fer ég að hugsa um hvað ég ætla að gera þegar ég er búin að þvo upp. Og svo framvegis. Hugurinn er alltaf einu skrefi á undan.
Nú ætla ég að reyna að halda bókhald yfir þessar hugsanir - athuga hvenær ég flý mest yfir í næsta skref. Ef útkoman verður ekki mjög neyðarleg þá segi ég frá henni hér.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?