Friday, December 29, 2006
29. desember
Í dag er fimmti í jólum og ég er ein mætt í vinnuna fyrir allar aldir. Hér er góður vinnufriður en ég þarf góðan kaffibolla til að koma mér í gang. Þetta er líklega síðasti vinnudagurinn minn hér. Eftir viku byrja ég að vinna á nýjum stað. Það verður krefjandi vinna en rosalega spennandi. Hlakka mikið til að takast á við ný verkefni.
Sunday, December 24, 2006
Nú er jólanótt
og hér ríkir svo mikill friður að ég tími ekki að fara að sofa.
Wednesday, December 20, 2006
Í Californíu
er ekkert skammdegisþunglyndi. En þar er heldur engin miðnætursól.
Á morgun er stystur dagur og á morgun kemur BA heim.
Ég mæli með jólaóratoríu Bachs í svartasta myrkrinu.
Á morgun er stystur dagur og á morgun kemur BA heim.
Ég mæli með jólaóratoríu Bachs í svartasta myrkrinu.
Tuesday, December 19, 2006
Ekki er bjartara
í dag. Mér finnst ég vera inni í potti með loki. Taugarnar liggja utan á líkamanum og ég má ekki við neinu hnjaski, hvorki andlegu né líkamlegu. Birta dagsins var þó löns á Jómfrúnni með gömlum vini. Guði sé lof fyrir góða vini.
Tveir dagar í vetrarsólhvörf.
Tveir dagar í vetrarsólhvörf.
Monday, December 18, 2006
Myrkur
Ég veit ekki hvað hægt er að skrifa á þessum dimma degi. Nema að nú eru bara þrír dagar til vetrarsólhvarfa og eftir það fer allt á upp á við. Alla vega sólin.
Wednesday, December 13, 2006
Endurskinsmerki
Þakkarefni dagsins er að ég skyldi ekki aka yfir neinn gangandi vegfaranda á leiðinni í vinnuna. Það var allt of margt dökkklætt fólk án endurskinsmerkis á gangi og allt of margir bílar á götunum ef út í það er farið. Kannski ég fari að nota strætó meira . . . og þá þarf ég að hafa endurskinsmerki.
Tuesday, December 12, 2006
Karlsvagninn
Í morgun lá ég á bakinu í Vesturbæjarlauginni og horfði á Karlsvagninn. Andaði inn friði og út stressi. Friður og gleði inn - stress og fýla út; friður inn - stress út. Þetta virkar.
Sunday, December 10, 2006
Tíminn
er skrítin skepna. Þegar skammdegið lagðist yfir óskaði ég þess að tíminn liði nú hratt þar til birti á ný. En svo venst myrkrið og þegar aðventan er byrjuð nýt ég þess að kveikja á kertum og liggja í kósíheitum uppi í sófa með rauðrunnate og bók, já og poppkorn. Og þá vil ég að tíminn hægi á sér svo að ég geti lesið allar bækurnar sem bíða. Kannski er mér að takast að lifa í nú-inu.
Friday, December 08, 2006
Einir jólatónleikar
Léttsveitarinnar að baki - aðrir framundan.
Það er alveg einstök tilfinning að standa í Langholtskirkju með 120 konum og syngja falleg jólalög.
Það er líka alveg einstök tilfinning að sjá framfarir útlendinga sem ég er að kenna íslensku. Útlendinga sem komnir eru langan veg til að vinna á heilbrigðisstofnunum okkar við ýmis störf.
Og einstök tilfinning að vakna eftir góðan nætursvefn.

Monday, December 04, 2006
Aðventan
er byrjuð. Ég var svo heppin að dóttursonur minn var hjá mér þegar ég setti kertin í aðventukransinn og kveikti á fyrsta kertinu. Hann fylgdist áhugasamur með og fékk að hjálpa til. Síðan bökuðum við súkkulaðibitakökur.
Seinni partinn fór ég í langan göngutúr og sá að víða var fólk að setja upp alls konar falleg ljós við heimili sín.
Nú tekur við annasöm vika, tvennir jólatónleikar hjá Léttsveitinni með tilheyrandi æfingum. Síðan bíð ég eftir svari við spennandi tilboði.

Friday, December 01, 2006
Nú er enn ein helgin framundan
og í kvöld eru þrjú samkvæmi: Afmæliskringla hjá litla bróður mínum, jólahlaðborð í vinnunni og jólahlaðborð hjá saumklúbbnum mínum. Ég næ afmælisboðinu og saumaklúbbnum og get rétt smeygt mér inn á milli í for(drykk)rétt hjá vinnufélögunum.
Ég hlakka kvöldsins en ekki síður til þess að vakna hress í fyrramálið í helgartiltekt og jafnvel jólabakstur!
Ég hlakka kvöldsins en ekki síður til þess að vakna hress í fyrramálið í helgartiltekt og jafnvel jólabakstur!