Tuesday, May 30, 2006

 

Lukkunnar pamfíll

Í gærkveldi kom dóttir mín í mat með son sinn. Síðan komu þrjár bestu vinkonur mínar í heimsókn. Í kvöld ætla ég að borða með saumaklúbbnum mínum, 10 skemmtilegum konum. Á morgun tek ég vinnutörn með systkinum mínum og mömmu.
Það er ekkert mjög leiðinlegt í vinnunni núna og ég á ágæta vinnufélaga.

Monday, May 29, 2006

 

Var að hugsa um

að skrifa hér um kosningarnar en það kemur mér bara í vont skap. Mér finnst bara svooooooooo leiðinlegt að Oddný, vonkona mín, skyldi ekki komast að. Svo finnst mér afar ergilegt að framsókn skyldi koma þessum manni að í Reykjavík. Skil bara ekkert í því. Og glottið á borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Kastljósi í gær, þegar hann taldi sig vera búinn að veiða Ólaf, olli mér ógleði. Og nú er ég búin að skrifa um kosningarnar.
En úti skín sólin og kannski kemur sumar á landinu kalda. Alla vega hjólaði ég í vinnuna og naut þess. Vonandi hangir hann þurr þangað til ég fer heim.

Friday, May 26, 2006

 

Fyrsti rigningardagurinn

í langan tíma - og ég á hjóli í fyrsta sinn í vor.

 

Það var gott

að eiga frídag í gær. Byrjaði daginn á að bera út upplýsingabækling Samfylkingarinnar. Ákvað að kalla þetta upplýsingabækling frekar en kosningaáróður. Í minn hlut komu Bergstaðastræti og Laufásvegur og það var yndislegt að ganga þessar götur og skoða húsin í hádegissólinni. Merkilega fáir á ferli.
Á eftir hvíldi ég mig í sólbaði á svölunum mínum, hjólaði svo niður í bæ og hlustaði á Oddnýju spila með gömlu hljómsveitinni sinni sem heitir Ensími. Endaði daginn á að horfa á Desperate Housewives með stóra poppkornsskál fyrir framan mig.

Wednesday, May 24, 2006

 

Getur verið

að krían hafi séð kuldakastið fyrir? Getur verið að það sé ástæðan fyrir seinni komu hennar til landsins? Þó að hún sé komin á Tjörnina þá lætur hún lítið fyrir sér fara, sést varla. Kúrir örugglega bara einhvers staðar í vari.
En geitungarnir; þeir mega fara fj. . . til. Fátt er svo með öllu illt . . . Vonandi er þetta kuldakast nógu slæmt til að kála geitungunum en ekki of slæmt til að kála varpi fugla.

Áðan bankaði útlendingur upp á hjá mér og bauð mér blýantsteikningar sem hann og vinir hans hafa teiknað og eru að selja sér til viðurværis. Þegar hann sýndi mér myndirnar kannaðist ég við þær, fór inn og fann alveg eins mynd sem ég hafði keypt af sams konar manni í fyrra. Drengurinn reyndi að krafla sig út úr vandræðunum: It's not quite a copy, it's a kind of a copy, copy, sagði hann þegar ég bar myndirnar saman en þær voru nákvæmlega eins, líkt og ljósrit. Rak hann öfugan út. Hef samt samúð með fólki sem er að reyna að afla sér tekna. En samt . . .

Tuesday, May 23, 2006

 

Þessi vísa á vel við í dag

Stjórnar þú þessu, góði guð?
Gerirðu þennan ófögnuð
að fylla heiminn með frosti og hríð?
Finnst þér þetta ekki bölvuð tíð
í maí?

Þura í Garði

Friday, May 19, 2006

 

Er á leið til

Parísar í haust í hópi 10 kvenna. Við erum búnar að kaupa okkur flugmiða og nú erum við að reyna að finna hótel fyrir okkur allar og það gengur nú svona og svona. Til að finna út úr því skrifum við hver annarri cirka 100 tölvubréf á dag og í gær færðist ansi mikið fjör í leikinn. Þá fórum við að skrifa ljóðabréf og svo þróaðist þetta út í myndlist og hver veit hvar það endar.

Thursday, May 18, 2006

 

Nokkrar kríur

sveimuðu yfir Tjörninni í morgun. Þær eru færri en venjulega. Ég sný ekki aftur með það. Ég held að framkvæmdirnar í Vatnsmýrinni hafi breytt einhverju. Mér finnst það sorglegt því að krían er fegursti vorboðinn þó að ég sé skíthrædd við hana í návígi.

Saturday, May 13, 2006

 

Krían

er ekki enn komin á Tjörnina. Bíð bara spennt og hissa.
Í dag hef ég barist við flensu og svei mér ef ég er ekki að vinna . . .
Keypti mér bókaskápa í IKEA og var kát þegar tveir karlmenn færðu mér þá heim. En þá sögðu þeir að sendingin væri bara að útidyrum. Og ég sem bý á þriðju hæð. Hvað geri ég þá? Bar mig frekar aumlega og þeir vorkenndu mér og báru skápana upp fyrir mig. Þeim er vorkunn. Þeir fá fyrirmæli um að flýta sér og halda tímaátælun sem felur ekki í sér burð upp á hæðir í blokkum. Greyin voru þakklát fyrir vatnsglas. Svo hringdi ég í IKEA og kvaraði yfir illri meðferð á sendibílastjórum. Hrósaði samt drengjunum mínum sem gerðu sitt besta.
Harmonikkutónleikar í NASA, Motion Trio á Listahátíð, settu punktinn á góðan dag.

Thursday, May 11, 2006

 

Ég skil ekkert í

kríunni. Þegar ég var lítil var mér kennt að hún kæmi 14. maí. Eftir að ég fór að fylgjast með henni á Tjörninni í Reykjavík tók ég eftir að hún kom oftast 4.-5. maí. Í fyrra kom hún hins vegar miklu seinna. Þá kenndi ég framkvæmdum við Hringbrautina í Vatnsmýrinni um. Núna er kominn 11. maí og enn hef ég ekki séð kríu á Tjörninni. Í gærkveldi fór ég m.a.s. út á Seltjarnarnes þar sem er alltaf svo mikið kríuvarp en þar var engin kría. Hins vegar sá ég stóran flokk af helsingjum, held ég. Gætu hafa verið margæsir.
En alla vega þá skil ég ekkert í hvers vegna krían er svona seint á ferðinni.

Saturday, May 06, 2006

 

Í dag var 15

stiga hiti á löngum laugardegi á Laugaveginum. Það er svo gaman að búa í landi þar sem gott veður gleður fólk og gerir það þakklátt.

Friday, May 05, 2006

 

Byrjaði daginn

á því að synda 600 m í Vesturbæjarlauginni. Ég er orðin nokkuð góð í skriðsundinu. Síðan gufa og heitur pottur. Í vinnunni hófst dagurinn á prófarkalestri. Svo taka við þýðingar. Það er millibilsástand hjá mér og ég er notuð í ýmis verkefni. Það er ágætt í stuttan tíma en mig þyrstir í „alvöruverkefni“. Samt langar mig mest í langt frí. Og það kemur að því. En framundan er hvíldarhelgi og stefnumót við gamla vinkonu. Ég hlakka til.

Thursday, May 04, 2006

 

Ég hef ekkert skrifað

í næstum því mánuð. Margt hefur gerst þennan mánuð; ég fór til Kúbu, ég er að endurskipuleggja heimilið mitt og vinnan mín er í óvissu. En það sem mér finnst merkilegast er að dóttursonur minn er kominn með lausa tönn.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?