Thursday, February 16, 2006
Hef ekkert synt
alla vikuna. En ég fór í leikfimi í Kramhúsinu í gær og þangað er gott að koma. Þrátt fyrir þrengsli í búningsklefanum og frekar lélegt ástand hússins þá er þar góður andi og yndislegur kennari. Hún spilar franska kaffihúsatónlist, suðurameríska salsa- og sambamúsik og afró trumbuslátt. Við dönsum mjúk salsaspor eða þung skessuhopp, hristum okkur og dinglum og teygjum og slökum. Ímyndum okkur að við séum að vaða í leðju og rétt snerta vatnsflöt með fingurgómunum. Og þegar við teygjum hliðarhálsvöðvana segir hún okkur að setja bíllyklana undir hökuna og teygja kattareyrað upp, líta síðan undir handarkrikann. Þannig næst mjög góð og mjúk teygja; reynið nú að gera þetta.
Thursday, February 09, 2006
Keypti mér
plötulopa í gær. Nú ætla ég að prjóna peysu á sjálfa mig. Búin að prjóna hnepptar lopapeysur á dætur mínar og heila á dóttursoninn. Dæturnar vilja hafa peysurnar svo litlar og þröngar að þær virka snollaðar. En þær eru mjög smart á þeim
Mér finnst svo gaman að prjóna lopapeysur og skemmtilegt að nú skuli þær vera í topptísku, altso nýtt snið en gamla mynstrið heldur sér.
Hlakka til að koma heim og fitja upp á peysunni. Kannski tek ég einn skáp meðan kartöflurnar sjóða. Og í kvöld koma vinkonur mínar í heimsókn.

Wednesday, February 08, 2006
Flugkonan
Vinkona mín benti mér á yndislega vefsíðu http://flylady.net sem kennir manni alveg nýjan fílósófíu gagnvart tiltekt og húsverkum. Mottóið er að gera lítið í einu, taka einn skáp í einu, eða bara eina hillu í skáp, setjast síðan niður og slappa rækilega af. Losa sig skipulega við drasl - hafa þrjá kassa: Einn fyrir „henda“, annan fyrir „gefa“ og þriðja fyrir „ganga frá“. Henda hlutum sem hafa lokið hlutverki sínu og syngja fyrir þeirra hönd: „Please release me, let me go . . . “ Henda og gefa „strax“.
Gera lítið í einu, heimilið fylltist ekki af drasli á einum degi og maður losar sig ekki við það á einum degi.
Ég er bara rétt að byrja en er þegar farin að hlakka til að komast heim úr vinnunni til að taka einn skáp. Þetta verður að fíkn og ég frétti af konu sem laumaðist til að taka einn skáp meðan vatnið í kaffið var að hitna.
Á fyrrnefndri síðu er margt fleira sem léttir manni húsverkin - hlakka mikið til að kynna mér það allt saman.