Wednesday, October 18, 2006

 

Fyrsta frostið

Í morgun var frost í fyrsta sinn í haust. Blæjalogn og bjart; haustveður upp á sitt besta. Og í gærkveldi stjörnubjart og norðurljós.
Ég er þakklát fyrir hlýju kápuna mína, heita vatnið í sundlauginni og Esjuna í morgunsólinni.

Comments:
Mikid lysirdu haustinu fallega. Njottu tess.
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?