Friday, September 01, 2006

 

Í gær

leiddist mér svo í vinnunni að ég lét mig dreyma um að flytjast til New York. Fór inn á fasteignavef í New York og leitaði mér að íbúð. Sú flottasta sem ég sá kostaði 70 milljónir dollara sem eru um það bil 5 milljarðar króna. Það er penthouse-íbúð á þremur hæðum í suð-austurhorninu á Central Park. 5 svefnherbergi, 7 baðherbergi, 16 herbergi alls, séríbúð fyrir gesti og önnur fyrir þjónustufólk. Íbúðin er á 40. hæð, útsýni yfir alla Manhattan.
En það er hægt að fá góða þriggja herbergja íbúð í West Village, sem kallast víst „downtown“ og er mjög hip og kúl hverfi, á svona milljón dollara, 70 milljónir.

Comments:
Kaera Ragnheidur, geturdu ekki keypt ibudina sem fyrst! Eg hlakka til ad koma i heimsokn til tin i NY, ibudin i West Village er alveg nogu fin fyrir mig.
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?