Wednesday, April 05, 2006
Það er tvennt
sem ég þoli ekki í Reykjavík í dag. Fyrst er það rokið; ég verð alltaf geðvond í roki, sérstaklega þurru roki. Svo er það umferðin í borginni; verð líka geðvond þegar ég þarf að aka milli staða innanbæjar eins og ég þurfti að gera í hádeginu. Þannig að ég hef ærna ástæðu til að vera geðvond núna. Samt er ég ekkert mjög pirruð og skil eiginlega ekki hvers vegna ég er að skrifa þetta.
En ef einhver skyldi lesa þetta og takast að skrifa comment þá bið ég ykkur að botna eftirfarandi setningu: „. . . með þátttöku starfsfólks af erlendu bergi brot. . . . . . “ Fjöldi punkta segir ekkert endilega til um stafafjölda. Þið megið líka senda mér tölvupóst ef ekki tekst að skrifa comment.