Monday, January 08, 2007
Týpískt
að kvefast um leið og ég byrja í nýju starfi. Helgin fór í að berjast við kvef með öllum tiltækum ráðum. Fjallagrös soðin með kamillu og bragðbætt með hunangi. Eplaedik þynnt með soðnu vatni og bragðbætt með hunangi. Gulrætur, engifer og epli kreist í safavélinni. Nefdropar, svefn, innivera.
En ég komst í vinnuna í dag og vann bara vel, hóstandi og sjúgandi upp í nefið.
En ég komst í vinnuna í dag og vann bara vel, hóstandi og sjúgandi upp í nefið.