Saturday, January 06, 2007
Nýtt starf
Í gær byrjaði ég í nýju starfi. Þetta er mjög spennandi tækifæri og ég finn strax hve reynsla mín frá fyrri störfum nýtist vel. Þetta verður strembið og ekkert slór en vonandi lærdómsríkt. Þori ekki að segja meira í bili nema að vinnustaðurinn er í miðbænum og ég mun ganga til vinnu sem tekur mig svona 15 mínútur. Svo er spurning hvernig ég kem sundi og leikfimi inn í nýja rútínu.