Thursday, February 16, 2006

 

Hef ekkert synt

alla vikuna. En ég fór í leikfimi í Kramhúsinu í gær og þangað er gott að koma. Þrátt fyrir þrengsli í búningsklefanum og frekar lélegt ástand hússins þá er þar góður andi og yndislegur kennari. Hún spilar franska kaffihúsatónlist, suðurameríska salsa- og sambamúsik og afró trumbuslátt. Við dönsum mjúk salsaspor eða þung skessuhopp, hristum okkur og dinglum og teygjum og slökum. Ímyndum okkur að við séum að vaða í leðju og rétt snerta vatnsflöt með fingurgómunum. Og þegar við teygjum hliðarhálsvöðvana segir hún okkur að setja bíllyklana undir hökuna og teygja kattareyrað upp, líta síðan undir handarkrikann. Þannig næst mjög góð og mjúk teygja; reynið nú að gera þetta.

Comments: Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?