Tuesday, February 27, 2007

 

Langt hlé

Nú hef ég ekki bloggað um langt skeið. Hef ekki alveg verið upplögð. En skammdegið er búið og bjart yfir þó að svifrykið sé að kæfa okkur. Stofnum samtök gegn svifryki, bönnum nagladekk, höfum ókeypis í strætó og fjölgum strætóferðum.
Og að lokum er þakkarefni dagsins: Vinkonur - vinkonur nær og fjær.

Tuesday, January 30, 2007

 

Nú glittir í

bláan himin svo að eitthvað er nú brúnin að lyftast á minni. Skrítið hvað veðrið hefur mikil áhrif á konu, alla vega mig. Hlakka til að ganga upp Skólavörðustíginn á vit útlendinganna á Landspítalanum. Næstsíðasti tíminn þeirra.

Monday, January 29, 2007

 

Enginn handbolti

í dag; bara súld og aftur súld. Ég vil frekar hafa 10 stiga frost, snjó og birtuna sem hann endurspeglar heldur en þessa hlýju súld. Myrkrið er yfirþyrmandi og skammdegið ætlar engan enda að taka.
Já, svona verður kona geðvond í myrkrinu á þorranum.

Wednesday, January 24, 2007

 

Nú eru allar mínar

bestu vinkonur á sólarströndu, hver í sinni heimsálfunni. Ameríka, Evrópa og Afríka. Ég læt mig hafa það að hanga í súld og slabbi og skammdegi. En ég hef þó handboltann sem þær vita ekkert af. Það er þó altént sárabót. Áfram Ísland!

Sunday, January 21, 2007

 

Tvær vikur

í nýju starfi hafa liðið hratt. Ég á eftir að átta mig á því hvernig mér líkar. Vitur maður sagði mér að þrennt væri nauðsynlegt til að vera fullkomlega ánægður í starfi. Starfið þyrfti að vera skemmtilegt, starfskjör góð og síðan þyrfti maður að finna köllun sinni farveg í starfinu. Í útlendingakennslunni var tvennt af þessu. Í nýju vinnunni er hvorugt af þessu tvennu en nóg af þættinum sem vantar í útlendingakennsluna. Ég væri alsæl ef ég kæmi útlendingakennslunni fyrir meðfram nýja starfinu en það á eftir að koma í ljós.

Monday, January 15, 2007

 

Svei mér ef dagurinn er ekki að

lengjast. Kannski er það snjórinn sem gefur birtuna en mér fannst ekki svo dimmt í dag. Gekk í vinnuna í 7 stiga frosti og heim aftur. Var ekkert kalt.
Það var rólegra í vinnunni í dag, nokkuð afslappaður dagur - en samt vinna. Soðin ýsa, hrogn og lifur í hádegismat. Og ég komst í leikfimi. Og heim á skikkanlegum tíma. Átti rólegt kvöld heima og skrifaðist á við vinkonur mínar á msn; önnur er í Suður-Frakklandi, hin í Suður-Kaliforníu. Bara fínn dagur.

Wednesday, January 10, 2007

 

Úrvinda

eftir langan vinnudag. Nýja vinnan er krefjandi og það tekur á að byrja í nýrri vinnu svona á gamalsaldri. Þegar vinnudegi lauk um sexleytið hugsaði ég hve gaman það væri nú að eiga eiginkonu sem væri búin að elda matinn, taka til, skipta um á rúmunum, hita inniskóna o.s.frv.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?